Þakkargjörðarmáltíð
Hvað er dásamlegra að fá fjölskyldu eða vini saman að veisluborðinu. En þú færð allt fyrir veisluna þína í Hagkaup og meira til.

Innihaldsefni
Smörsprautað kalkúnaskip frá Hagkaup
Klettasalat til að bera fram
Sætkartöflumús
1 kg gufusoðnar sætar kartöflur (ósoðin þyngd)
100 g rjómaostur
40 g smjör
50 ml rjómi eða mjólk
2 msk púðursykur
1 tsk kanill
¼ tsk múska
½ tsk salt
150 g litlir sykurpúðar, eða stórir sykurpúðar klipptir í tvennt
Smá pekanhnetur, grófsaxaðar
Sykurgljáðar gulrætur
500 g gulrætur
5 msk ólífuolía
4 msk hunang
1 tsk kanill
1 tsk salt ¼ tsk pipar
Fersk steinselja
Ferskt salat
1 paprika smátt skorin
½ gúrka, smátt skorin
½ lítill rauðkálshaus, smátt rifinn
2 stilkar vorlaukur, smátt skornir
Granateplafræ eftir smekk
Dressing
½ dl balsamik edik með hindberjabragði frá Salling
3 msk Traditional Cranberry Spread frá Stonewall Kitchen
Kalkúnafylling
Tilbúin kalkúnafylling frá Hagkaup
Kalkúnasósa með salvíu
Tasty kalkúnasósugrunnur
400 ml vatn
Brún sælkerasósa
3–4 blöð fersk salvía frá Vaxa
Soðið af kalkúnaskipinu
1–2 msk Traditional Cranberry Spread frá Stonewall Kitchen
Trönuberjaklakar
Fersk trönuber
Vatn
Aðferð
Hitaðu ofninn í 180°C og settu kalkúnaskipið í ofnskúffu. Elduðu það í 45 mínútur á hvert kíló, þar til kjarnhitinn í þykkasta hluta bringunnar nær um 72–74°C.
Á meðan skipið er í ofninum gerirðu sætkartöflumúsina. Ég gufusauð sætu kartöflurnar þar til gaffall rann auðveldlega í gegnum þær. Öll innihaldsefnin sett í hrærivélaskál á meðan kartöflurnar eru enn smá volgar, þá blandast allt svo vel saman. Settu músina í smurt eldfast mót, sléttu yfirborðið og láttu hana bíða á borðinu.
Næst eru það gulræturnar. Hrærðu ólífuolíu, hunangi og kryddi saman, veltu gulrótunum upp úr blöndunni og dreifðu þeim í eitt lag á ofnplötu með bökunarpappír. Þær fara inn í ofninn um 40 mínútum áður en skipið á að koma út og bakast í 35–40 mínútur.
Útbúðu sósuna á meðan. Hrærðu sósugrunninn saman við vatnið í potti, blandaðu brúnu sælkerasósunni saman við og bættu salvíublöðunum út í. Láttu hana malla við vægan hita.
Settu svo salatið saman: blandaðu papriku, gúrku, rauðkáli og vorlauk í skál og stráðu granateplafræjunum yfir. Hrærðu balsamik edikinu og trönuberjamaukinu saman í dressingu.
Þegar skipið er tilbúið tekurðu það út og lætur það hvíla í 15–20 mínútur undir álpappír. Geymdu soðið úr ofnskúffunni. Dreifðu sykurpúðunum og pekanhnetunum yfir músina og bakaðu hana í um 15 mínútur, þar til sykurpúðarnir eru gylltir. Hitaðu kalkúnafyllinguna í ofninum á sama tíma eftir leiðbeiningum á umbúðunum. Sigtaðu soðið af skipinu út í sósuna og smakkaðu hana til með 1–2 msk af trönuberjamauki.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments