Tostitos snakk veisla
Hér eru tvær einfaldar og góðar uppskriftir sem slá alltaf í gegn, hvort sem það er í veislunni, á kósíkvöldi eða yfir leiknum. Önnur er köld ídýfa í lögum með rjómaosti, salsasósu, fersku grænmeti og nautahakki og hin eru heitar Tostitos Scoops fylltar með nautahakki og bráðnum osti. Það besta
er að sama hráefnið nýtist í báða réttina, svo það er lítið mál að bjóða upp á báða í einu.
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.

Innihald:
500 g nautahakk
taco krydd
Tostitos Hint of Lime snakk
Tostitos Crispy Rounds snakk
Tostitos Scoops snakk
Tostitos Chunky Salsa
200 g rjómaostur
1 lítill rauðlaukur
2 tómatar
1 mangó
salatblanda frá Vaxa
kóríander frá Vaxa (má sleppa)
rifinn ostur, ca. 150 g
Ég byrja á því að steikja nautahakkið á pönnu og krydda það með taco kryddinu. Sker svo grænmetið niður, rauðlaukinn, tómatana og mangóið í litla bita og salatblönduna og kóríanderinn smátt.
Ég set rjómaostinn í botninn á fati eða skál og slétti úr honum. Set svo salsasósuna yfir og dreifi grænmetinu yfir salsasósuna. Næst kemur nautahakkið og að lokum rifinn ostur ofan á. Ídýfan er borin fram köld með Hint of Lime og Crispy Rounds snakkinu.
Heitar fylltar scoops:
Ég raða Scoops snakkinu á ofnplötu og fylli það með nautahakki og salsasósu. Strái rifnum osti yfir og baka í ofni við 180°C í um 10 mínútur, eða þar til osturinn er bráðinn.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments