Fiskur í rjómaosti með tómat og basil
Þessi einfaldi og góði fiskréttur er bæði fljótlegur og góður, alveg fullkominn í miðri viku.
Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald
800 g ýsa eða þorskur
1 askja rjómaostur með tómat og basil
1 laukur
2 - 3 hvítlauksrif
3 msk tómat púrra
1 askja kirsuberjatómatar (250 g)
400 ml kjúklingasoð (vatn og 1 teningur)
paprikukrydd, salt, oregano 1 tsk af hverju kryddi
fersk basilíka
olía til að steikja upp úr
Þú byrjar á því að steikja lauk og hvítlauk á pönnu upp úr olíu þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Kryddar með salti, oregano og papriku og bætir tómatpúrrunni við. Hrærir vel saman og leyfir þessu að steikjast í smá stund.
Næst hellir þú kjúklingasoðinu út á pönnuna og hrærir. Bætir svo rjómaostinum út á og hrærir þar til hann hefur bráðnað og sósan er orðin slétt og falleg. Því næst fara kirsuberjatómatarnir út í.
Skerð fiskinn í hæfilega bita og raðar honum ofan í sósuna. Setur sósuna yfir fiskinn og stráir ferskri basilíku yfir. Leyfir þessu að malla í 10 - 12 mínútur, eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn. Ef þú setur lok á pönnuna verður sósan þynnri en þykknar ef þú sleppir lokinu.
Borið fram með hrísgrjónum.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments