top of page

Sítrónupasta með kjúklingi

10 minutes ago
2 min read

Nú standa yfir ítalskir dagar í Hagkaup þar sem verslanirnar eru fullar af gómsætum ítölskum vörum. Tilvalið að kveikja á kerti og elda góðan mat.


Hér erum við með einfalda og góða uppskrift af sítrónupasta en þú færð allar vörurnar sem ég er að nota í Hagkaup. Færslan er unnin í samstarfi við Hagkaup.

Innihald fyrir 4

4 Kjúklingabringur

300 g sítrónupasta frá Filotea (1 og hálfur pakki)

hvítlaukur (ég notaði 2 solo hvítlauka)

2 msk hveiti

1 bolli vatn

300 - 400 g rjómi

100 g parmesan ostur rifinn frá GranTerre

sítrónubörkur rifinn (má sleppa)

1 bolli pasta vatn

salt, hvítlaukspipar, oregano

rotisserie kjúklingakrydd frá Badia

2 sítrónur, (ein fyrir safa, önnur fyrir börkinn og sítrónusneiðar)

fersk steinselja

ólífuolía


Salat:

Babyleaf frá Vaxa

granateplafræ

parmesanostbitar frá GranTerre

mini pan d'aria saltkex

smá ólífuolía


Ég byrja á því að skera kjúklingabringurnar í tvennt og krydda þær með kjúklingakryddinu. Mér finnst þægilegra að skera þær í tvennt þegar ég er að steikja á pönnu svo ég sé örugg á að allt sé eldað í gegn. 6 mín á hvorri hlið ætti að duga. Ég tek svo kjúklinginn af pönnunni og set hann til hliðar.


Steiki hvítlaukinn á sömu pönnu, bæti hveitinu og vatninu út á pönnuna ásamt sítrónusafa og leyfi þessu að taka sig á pönnunni í smá stund. Bæti svo rjómanum út á ásamt salti, hvítlaukspipar og oregano.


Á þessum tímapunkti er sniðugt að fara að sjóða pastað upp úr söltu vatni. Set svo um helminginn af rifna parmesan ostinum út á pönnuna ásamt aðeins meiri rjóma og rifnum sítrónuberki. Tek einnig um 1 dl af pastavatninu og blanda saman við sósuna.


Þegar pastað er soðið eftir um 4 - 5 mínútur set ég það út á pönnuna og raða svo kjúklingnum þar ofan á. Strái rifnum parmesan osti yfir ásamt sítrónusneiðum og ferskri steinselju.


Borið fram með salatinu.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga






 
 
 

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page