top of page

Bbq salat

10 minutes ago
1 min read

Ótrúlega fljótlegt, einfalt og gott bbq kjúklingasalat með próteinsnakkinu frá QNT


Ég notaði tilbúinn kjúling en það er líka hægt að nota kjúklingabringur.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við QNT

Innihald:

400 g kjúklingur (má vera meira) 2 - 3 bringur

50 g bbq sósa - sett á kjúklinginn

100 g salat

1 paprika 190 g

1/2 gúrka 200 g

250 g gular baunir (ég var með frosnar)

240 g svartar baunir (1 dós)

1 - 2 pokar bbq próteinsnakk frá QNT

150 g grísk jógúrt

50 g bbq sósa


Ég hef bæði gert salatið með grilluðum kjúklingabringum og tilbúnum kjúklingi. Eftir að kjúklingurinn hefur verið skorinn niður er 50 g af bbq sósu hellt yfir hann og blandað saman við hann. Innihaldsefnunum blandað saman í skál, sósan útbúin í annarri skál og hellt yfir salatið. Í lokin er svo bbq snakkið frá QNT brotið yfir salatið og öllu blandað saman. Gott að vera með auka poka af snakki og brjóta yfir smá snakk á hvern disk þegar þú færð þér salat.


Næring í 100 g

Kolvetni: 9,3 g

Prótein: 7,6 g

Fita: 3,4 g

Trefjar: 1,7 g


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó salatið til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




 
 
 

Comments


bottom of page