Tiramisu skál
Tiramisú skál sem sælkerar mega ekki láta framhjá sér fara. Næringarrík og frábærlega góð skál sem þú getur borðað alla morgna eða hvenær sem er yfir daginn. Það er sniðugt að búa skálina til kvöldinu áður en það er líka hægt að gera hana samdægurs. Persónulega fæ ég aldrei nóg af kaffi fyrripart dags svo ég fæ mér hiklaust kaffi með.
Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald:
10 g chia fræ
100 ml kaffibolli (kældur)
200 g Mmm grísk jógúrt með vanillubragði
25 g vanillu próteinduft (má sleppa)
5 g kakó duft (má sleppa)
Gott að byrja á því að hella upp á kaffibolla og leyfa honum að kólna aðeins áður en þú blandar honum saman við chia fræin. Leyfir þessu að taka sig örlítið og blandar svo Mmm grísku jógúrtinni saman við ásamt próteinduftinu. Gott að gera þetta að kvöldi og leyfa að standa yfir nótt. Það er einnig hægt að borða þetta beint en mér finnst áferðin betri ef skálin hefur fengið að standa í ísskáp í amk. 2 - 3 klst.
Það er hægt að sleppa próteinduftinu en þá er sniðugt að minnka kaffimagnið örlítið nota um 60 ml.
Mér finnst þægilegt að nota instant kaffiduft til að búa til kaffibollann, þá set ég heitt vatn í botninn og fylli svo upp með kaldara vatni.

Næring í einni skál:
Kolvetni: 26 gr
Prótein: 38 gr
Fita: 16 gr
Trefjar: 6 gr
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó þennan rétt til.
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Tiramisu skál eða Helga Magga.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments