Stafakaka
Hér er einföld og skemmtileg stafakaka sem skemmtilegt er að baka með kökkunum. Brago stafakexið frá Göteborgs setur skemmtilegan blæ á kökuna, en þú getur skrifað allskonar skilaboð á kökuna. Einnig er gaman að skoða hvaða stafir leynast undir hverri kökusneið.
Hvaða texta myndir þú skrifa á þína köku?
Formið sem ég notaði er 20 x 20 cm
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ljúfa líf, þú færð Brago stafakexið í öllum helstu matvöruverslunum.

Innihald:
1 pakki brago stafakex
200 g grísk jógúrt
2 egg
100 g eggjahvíta (eða 2 egg)
100 g hveiti
50 g royal búðingsduft með vanillubragði
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
Þú byrjar á því að þeyta saman eggin og eggjahvíturnar þar til blandan er orðin létt og ljós. Blandar því næst búðingsduftinu saman við og hrærir aftur. Næst blandar þú restinni af innihaldsefnunum út í skálina og blandar þessu rólega saman.
Þú setur stafakex í botninn á forminu, setur deigið yfir kexið. Því næst raðar þú stöfum ofan á kökuna. Þú getur skrifað skilaboð til fjölskyldunnar eða raðað stökum stöfum á víxl svo hver og einn fái sneið með sínum staf.
Kakan er bökuð við 180 gráður í blástursofni í 22-24 mínútur.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó kökuna til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments