top of page

Trefjaríkt súkkulaðikex

  • 24 minutes ago
  • 2 min read

Ef þú ert að leita þér að einhverju trefjaríku með kaffinu þá er þetta akkúrat súkkulaðikexið fyrir þig. Ég verð samt að mæla með því að þú drekkir vatnsglas með þar sem trefjainnihaldið í kexinu er ansi hátt, en hver biti er um 10 - 12 g eftir því hvernig það er brotið niður en í einum 10 g bita eru næstum 2 g trefjar. Valor sykurlausa súkkulaðið setur svo punktinn yfir i - ið í kexinu.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Nathan hf.


Innihald:

1/2 dl chiia fræ

1/2 dl hörfræ

1/2 dl hampfræ

1/2 dl graskersfræ

1 msk husk

1 1/2 dl eggjahvítur

150 g Valor 70% sykurlaust súkkulaði

salt


Þú byrjar á því að setja fræin í skál og blandar eggjahvítunum saman við fræin. Leyfir blöndunni að taka sig í um 5 mínútur en á þeim tíma þykkna chiia fræin. Ef þú átt ekki eitthvað af fræjunum til þá er ekkert mál að sleppa því sem þú átt ekki og setja annað í staðinn. Ég myndi samt mæla með að hafa chiia fræin, þau binda allt vel saman.


Blandan er svo sett á bökunarpappír, dreyft úr henni þar til hún er um 5 mm á þykkt. Kexið er bakað í ofni við 180 gráður í 30 mínútur. Valor súkkulaðið er brætt og það svo sett yfir kexið þegar það hefur kólnað. Gott að leyfa kexinu svo að kólna inni í ísskáp áður en það er brotið niður í bita.

Næring í 100 g

Kolvetni: 34,2 gr

Prótein: 19,6 gr

Fita: 33,6 gr

Trefjar: 16,8 gr


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comments


bottom of page