top of page

Makríl taco

  • 43 minutes ago
  • 1 min read

Makríll er einn næringarríkasti fiskurinn, náttúrulega ríkur af omega - 3 fitusýrum.

Hér er mjög einfaldar vefjur með makríl sem hægt er að hafa í kvöldmatinn eða taka með sér í nesti hvert á land sem er.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu. Þú færð Stabbur makríll fæst til dæmis í Hagkaup.


Innihald:

vefjur

Stabbur makril með salsa

sýrður rjómi

edamame baunir

kál

kóríander (má sleppa)

rauðlaukur (má sleppa)

límóna


Þú byrjar á því að skera niður grænmeti sem þú vilt setja í vefjurnar þínar. Þú smyrð vefjurnar með sýrðum rjóma, ég var með litlar vefjur en það má líka nota stórar. Því næst setur þú grænmeti í vefjurnar og setur svo makrílinn þar yfir. Gott að toppa með kóríander og límónu safa.


Einfaldara gerist það ekki.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments


bottom of page