top of page

Mmm ostakaka

11 minutes ago
2 min read

Súper einföld ostakaka með nýju Mmm mangó og chili grísku jógúrtinni.


Einstaklega létt og bragðgóð ostakaka sem svíkur engan.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn

Innihald:


500 g dós af Mmm grískri jógúrt með mangó og chili bragði

4 matarlímsblöð

2 - 3 msk vatn

180 g kanilkex

60 g smjör bráðið

3-4 bitar af frosnu mangói - (má sleppa)

ferskt chillí sem skraut (má sleppa)

minta sem skraut (má sleppa)


Þú byrjar á því að bræða smjörið og mylja kanilkexið í matvinnsluvél. Þessu er blandað saman og dreift í um 10 - 12 muffins form. Einnig er hægt að setja blönduna í hringlaga eða kassalaga form, glös eða hvað sem þér dettur í hug.

Á sama tíma setur þú matarlímsblöðin í kalt vatn í nokkrar mínútur. Þú tekur svo blöðin upp úr kalda vatninu og setur í aðra skál ásamt 2-3 msk af heitu vatni. Leyfið þessu að kólna örlítið áður en þið blandið matarlímsblöndunni rólega saman við grísku jógúrtina. Það er gott ef gríska jógúrtin er ekki ísköld þegar þessu er blandað saman til að koma í veg fyrir kekki.

Næst er jógúrtblandan sett yfir botninn og þetta kælt í ísskáp í um 4 klst á meðan matarlímið tekur sig.


Einstaklega gott að rífa frosið mangó yfir ostakökurnar og jafnvel smá chillí og ferska mintu.


Fyrir óþolinmóða einstaklinga er einnig hægt að útbúa botnana í litlar skálar eða glös, sleppa matarlíminu og setja grísku jógúrtina beint ofaná. Þetta er hægt að bera fram strax. Sama bragð bara önnur áferð á júgúrtinni.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga





 
 
 

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page