Blómkálssúpa með ofnbökuðu grænmeti
Blómkálssúpa með ofnbökuðu grænmeti, stökku beikoni og ristuðum kjúklingabaunum er eitthvað sem slær alltaf í gegn.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu.

Innihald fyrir 4–6
1 pakki Toro blómkálssúpa
8 dl vatn
2 dl mjólk
1 lítill blómkálshaus
1 laukur
1 heill hvítlaukur
2 bökunarkartöflur
ólífuolía
SPG krydd frá Kryddhúsinu (salt/pipar/hvítlaukur)
Grænmetisparadís frá Kryddhúsinu
5 dl vatn
Toppur:
150 g beikon (eða eftir smekk)
1 dós kjúklingabaunir
ólífuolía
SPG krydd frá Kryddhúsinu
paprikukrydd
fersk steinselja (má sleppa)
Grillaðar súrdeigssamlokur:
súrdeigsbrauð
rifinn ostur
Ég byrja á því að hita ofninn í 180°C. Sker blómkálið, laukinn og kartöflurnar niður í bita og sker ofan af hvítlauknum. Set allt á ofnplötu, helli ólífuolíu yfir og krydda með SPG og Grænmetisparadís.
Skola kjúklingabaunirnar og þerra þær vel, því þá verða þær stökkari. Velti þeim upp úr ólífuolíu, SPG kryddinu og paprikukryddi og dreifi þeim á ofnplötu. Raða beikonsneiðunum á plötu og set svo allt saman inn í ofninn í einu. Beikonið tek ég út eftir um 20 mínútur, eða þegar það er orðið stökkt, og læt það standa á eldhúspappír svo fitan leki af. Sker það svo í litla bita. Grænmetið og kjúklingabaunirnar fá að vera í ofninum í um 35 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og gyllt og kjúklingabaunirnar stökkar.
Á meðan grænmetið er í ofninum útbý ég súpuna úr 8 dl af vatni og 2 dl af mjólk eftir leiðbeiningunum á pakkanum.
Þegar grænmetið er tilbúið kreisti ég hvítlaukinn úr hýðinu og set hann í blandara ásamt restinni af grænmetinu og 5 dl af vatni. Mauka þar til blandan er orðin slétt. Bæti maukinu út í súpuna og hræri vel saman.
Borið fram með stökku beikoni, ristuðum kjúklingabaunum og ferskri steinselju yfir, og grilluðu súrdeigssamlokunum til hliðar.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments