top of page

Túrmerik boost

Ferskt túrmerik er algjört leynitrix í gott boost, en það gefur svo gott og ferskt bragð. Túrmerik er allra meina bót, bólgueyðandi, gott fyrir húðina og ónæmiskerfið. Þá hafa rannsóknir einnig sýnt fram á jákvæð tengsl á neyslu túrmeriks fyrir þá sem þjást af liðagigt svo fátt eitt sé nefnt. Og það besta er að þú færð það í Hagkaup.


Innihald fyrir einn:

-klakar 6-8stk

-120gr ananas

-100gr epli

-150ml möndlumjólk

-5gr ferkst túrmerik

-30gr próteinduft með vanillubragði

(eða öðru mildu bragði)


Blandaðu öllu saman í blandara með klökum. Það er ekkert verra að nota frosinn ananas.

Það er óþarfi að taka hýðið af turmerikinu því rótin litar mikið út frá sér. Guli liturinn úr túrmerikinu er einmitt guli liturinn í karrý kryddum.


Ég skola rótina áður en ég nota hana í köldu vatni.

Þegar ég kaupi ferskt turmerik í búðinni þá næ ég yfirleitt ekki að klára pakkann áður en hann skemmist, það er því gott ráð að skera turmerikrótina niður í um 5gr bita og frysta. Það er gott að hafa í huga að allt er gott í hófi þegar ferskt túrmerik er annars vegar, túrmerik er sterkt efni og þú getur fengið í magann af því að borða of mikið af því. 5gr í boost er hæfilegt magn í boost. Turmerik rót er mjög sterk og er ekki æskileg fyrir ófrískar konur né börn.


Næring í boostinu:

Kolvetni: 35,4 gr

Prótein: 25,3 gr

Fita: 4,4 gr

Trefjar: 5 gr


Smelltu hér til að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó boostið til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page