top of page

Tiramisú morgungrautur

Tiramisú grautur sem kaffiunnendur mega ekki láta framhjá sér fara. Næringarríkur og frábærlega góður grautur sem þú getur borðað alla morgna eða hvenær sem er yfir daginn. Það er sniðugt að búa þennan graut til kvöldinu áður en það er líka hægt að gera hann samdægurs. Þessi grautur er svo góður með rjúkandi heitum kaffibolla.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald:

-40 gr haframjöl

-5 gr chia fræ

-5 gr kakó duft

-smá salt

-25 gr vanillu próteinduft

-1 lítill sterkur kaffibolli 30 ml

-75 ml fjörmjólk

-130 gr ísey vanilluskyr


Þú byrjar á að setja saman í skál haframjöl, chia fræ, kakó, salt og próteinduft. Blandar svo saman við þetta kaffinu og fjörmjólkinni og lætur blönduna bíða í ísskáp yfir nótt. Ef þú ert að gera grautinn samdægurs er sniðugt að minnka örlítið mjólkina svo grauturinn verði þykkari, blandar þá saman í skál og lætur bíða í um 15 mínútur.


Þú raðar svo lögum af hafragrautnum og vanilluskyrinu á víxl og setur smá kakó efst.

Mér finnst þægilegt að nota instant kaffiduft til að búa til kaffibollann.

Næring í þessum graut:

Kolvetni: 32,7 gr

Prótein: 42,5 gr

Fita: 6,5 gr

Trefjar: 6,5 gr


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó þennan rétt til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page