top of page

Tiramisú grautur með tiramisú skyri

Hér er komin uppfærsla á tiramisú grautnum góða, orðinn enn betri með nýja skyrinu með tiramisú bragði frá MS. Fullkomin næring sem endist lengi. Tilvalið fyrir foreldra á fótboltamótum eða að morgni fyrir fólk sem er að fara í útivist.

Það er sniðugt að búa þennan graut til kvöldinu áður en það er líka hægt að gera hann samdægurs. Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald: - 40 gr haframjöl - 5 gr chia fræ - 5 gr kakó duft - smá salt - 25 gr vanillu próteinduft - 1 lítill sterkur kaffibolli 30 ml - 75 ml fjörmjólk - 130 gr ísey skyr með tiramisú bragði Þú byrjar á að setja saman í skál haframjöl, chia fræ, kakó, salt og próteinduft. Blandar svo saman við þetta kaffinu og fjörmjólkinni og lætur blönduna bíða í ísskáp yfir nótt. Ef þú ert að gera grautinn samdægurs er sniðugt að minnka örlítið mjólkina svo grauturinn verði þykkari, þú blandar þá öllu saman í skál og lætur bíða í um 15 mínútur. Þú raðar svo lögum af hafragrautnum og tiramisú skyrinu á víxl og setur smá kakó efst. Mér finnst þægilegt að nota instant kaffiduft til að búa til kaffibollann.

Næring í þessum graut: Kolvetni: 35 gr Prótein: 41,9 gr Fita: 9,7 gr Trefjar: 6,5 gr

Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó grautinn til.

Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga


bottom of page