Taco hringur með mexikó grýtu frá Toro
- 6 hours ago
- 1 min read
Einfaldur og góður réttur sem slær í gegn í öllum veislum. Rétturinn hentar einnig ótrúlega vel sem kvöldmatur.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu.
Þú færð Toro vörurnar í öllum helstu matvöruverslunum.

Innihald:
1 pakki Meksikanske gryte frá Toro
500 g nautahakk eða annað hakk
Litlar vefjur 17-20 stk
kóríander og sprettur - má sleppa
rifinn ostur
sósan:
sýrður rjómi
salsa sósa
Þú byrjar á því að steikja hakkið og blandar svo grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur. Á meðan er tilvalið að ná í vefjurnar. Þú getur annað hvort notað litlar vefjur eða skorið 4 vefjur út úr einni stórri (stærsta gerðin).
Þegar taco blandan er tilbúin er hafist handa við að útbúa hringinn. Ef þú ert að gera hringinn á ofnplötu er sniðugt að setja litla sósuskál eins og á myndinni í miðjuna og raða svo tacofylltum vefjum í kring um skálina, þá færðu fullkominn hring. Að lokum er ostur settur yfir vefjurnar og þetta hitað í um 5-10 mínútur við 180 gráður svo osturinn bráðni.
Á meðan er sósan útbúin en hún er gerð með því að blanda saman til helminga sýrðum rjóma og salsa sósu.
Þegar rétturinn er borinn fram er gaman að setja eitthvað grænt með, kóríander, sprettur eða klettasalat en því má einnig sleppa.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments