top of page

Súkkulaðigrautur með grískri jógúrt

  • Writer: Helga Gunnarsdottir
    Helga Gunnarsdottir
  • 13 minutes ago
  • 1 min read

Ég elska að byrja daginn vel með góðum morgunmat og ekki verra ef ég hef gefið mér smá tíma kvöldinu áður í að útbúa þennan graut.


Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS gott í matinn.

ree

Innihald fyrir einn:

2 weetabix prótein kökur

100 ml léttmjólk eða önnur mjólk

smá hunang


120 g grísk jógúrt

25 g súkkulaðiprótein (má sleppa)

1 tsk kakó


Smá weetabix mulningur ofan á


Súkkulaði

1 msk kókosolía

1 msk kakó

1 msk hunang eða önnur sæta


Þú byrjar á því að brjóta niður tvær weetabix kökur í skál og hellir mjólkinni yfir þær. Þú blandar þessu saman og þjappar niður í skálina. Í aðra skál blandar þú saman grísku jógúrtinni og próteinduftinu og hellir því yfir botninn. Þú blandar saman í skál bræddri kókosolíu, kakó og hunangi. Mylur smá weetabix ofan á og hellir svo súkkulaðinu yfir toppinn.

Gott að láta grautinn bíða yfir nótt eða í um 1 klst í kæli áður en hann er borðaður.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

 
 
 

Comments


bottom of page