top of page

Skyrskál

Mér finnst ótrúlega gaman að búa til skyrskálar, rétt eins og með boost þá er þetta ansi fín leið til að koma góðri næringu í börn. Þú þarft ekki að eiga mjög kröftugan blandara í þetta, þú getur látið frosnu ávextina bíða á borði í um 5 mínútur og þá er enginn vandi að blanda þessu saman.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald í eina skál

-170 g Ísey skyr jarðaber og hvítt súkkulaði

- 60 g frosin hindber

- 60 g frosin bláber

- 60 g frosið mangó


Skraut

-15 g múslí

- 3 g kókosmjöl

- 2 jarðarber


Þú tekur í byrjun frá nokkur ber til að nota sem skraut, blandar annars innihaldsefnunum saman í blandara og setur í skál. Skálin er svo skreytt með múslíi, kókosmjöli og berjum, eða því sem þér finnst gott. Sumum finnst gott að setja banana, hampfræ, rúsínur, döðlur eða hnetusmjör sem skraut, möguleikarnir eru margir.


Ég bætti aukalega í mína skál, 15 g af múslí, 3 g af kókosmjöli og 15 g af jarðarberjum.

Það er mjög auðvelt að auka kolvetnin með því að setja meira magn af frosnum ávöxtum, svo má líka auka við próteinið með því að bæta próteindufti út í.


Næring í einni skál (bara ávextir og skyr) þú skráir inn aukalega það sem þú velur að setja sem skraut.

Kolvetni: 27,2 g

Prótein: 16,4 g

Fita: 7,8 g

Trefjar: 5,7 g


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó skyrskálina til.


Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða skyrskál.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page