Próteinrík pizzaskál
- 4 days ago
- 1 min read
Ofur einföld próteinrík pizzaskál með kotasælu. Þessa skál er hægt að borða með kexi eða niðurskornu grænmeti. Einnig hef ég prófað hana með fiski til hliðar og það var mjög gott. Uppskriftina er hægt að stækka og minnka eftir hentisemi.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn

Innihald
300 g kotasæla
100 g pizzasósa
1 tsk pizzakrydd / oregano
100 g rifinn ostur
pepperoni eftir smekk (má sleppa)
Blandið saman í skál eða eldfast mót kotasælu, pizzasósu og pizzukryddi og setjið ost ofan á réttinn ásamt örlitlu pizzukryddi. Rétturinn er hitaður í blástursofni við 190 gráður í 12 - 15 mínútur.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments