Próteinpasta með kjúklingi
- 2 days ago
- 2 min read
Börnin mín elska þennan pastarétt, hann er einstaklega barnvænn, fljótlegur og góður. Það er vel hægt að búa til ótrúlega gott rjómakennt pasta án þess að nota rjóma.
Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup

Innihald:
1-2 hvítlauksrif
1 laukur 160 g
1 paprika 160 g
750 g kjúklingalundir eða bringur
400 g próteinpasta
200 g kotasæla maukuð
100 g rjómaostur með tómötum og basilíku
100 ml vatn af pastanu
krydda með 1 tsk af salti, pipar, oregano og smá chilli eftir smekk.
Þú byrjar á því að skera kjúklinginn og steikir hann upp úr olíunni, kryddar með salti og pipar. Setur svo kjúklinginn til hliðar og steikir smátt skorinn laukinn og hvítlaukinn. Ég er að nota tilbúinn niðurskorinn hvítlauk í krukku frá . Á sama tíma er gott að sjóða pastað eftir leiðbeiningum á pakkningunni. Ég bæti svo papriku út á pönnuna og krydda með salti, pipar, oregano og smá chillí.
Næst maukar þú kotasæluna og bætir henni út á pönnuna ásamt rjómaostinum og lækkar hitann örlítið. Gott að bæta um 1 bolla af pastavatni út á pönnuna og blanda saman. Kjúklingnum og pastanu er svo blandað saman við réttinn og borið fram með hvítlauksbrauði, ferskri basilíku og gott að toppa með parmesan osti.
Hvítlaukbrauðið bjó ég til úr súrdeigsbrauðinu frá Hagkaup, skar það í tvennt og smurði með smjöri, setti svo hvítlauk ofan á, smá salt og ost. Þetta var svo hitað í ofni við 190 gráður í um 10-15 mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrúnn.

Næring í 100 g
Kolvetni: 14,7 gr
Prótein: 13,8 gr
Fita: 2,3 gr
Trefjar: 2,5 gr
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða pastaréttur með kjúklingi.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments