Próteinflöff
- 2 days ago
- 1 min read
Þetta er ein af mínum uppáhalds uppskriftum, einfalt og sniðugt. Hægt að nota flöffið sem bollur, setja rjóma inní, smyrja með súkkulaðismjöri eða borða með osti.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við QNT

Innihald:
200 g eggjavhítur
15 g royal búðingsduft
40 g QNT próteinduft með vanillu- eða bananabragði
Byrjið á því að þeyta saman eggjahvítur og búðingsduft í um 5 mínútur þar til það er orðið vel stíft. Bætið svo próteinduftinu út í skálina og hrærið rólega saman með hrærivélinni eða með sleif.
Setjið í 12 muffins form eða myndið 12 kúlur/bollur í bökunarpappír.
Bakið við 180 gráður undir og yfir hiti í um 17 mínútur.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó bollurnar til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments