Próteinrík jógúrtskál
- 1 day ago
- 1 min read
Ef þú ert að leita að einföldum og fljótlegum rétti til að hafa í hádegismat eða kvöldmat þá er þetta rétturinn fyrir þig.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn

Innihald í 2 - 3 skálar
1 dós kjúklingabaunir
300 - 500 g grísk jógúrt
1 box litlir tómatar
gúrka smátt skorin
egg (ég notaði 2 í mína skál)
sprettur eða klettasalat
sítróna
hvítlauksrif
salt, sítrónupipar, chilli, hvítlaukskrydd
Þú byrjar á því að skola kjúklingabaunirnar og steikja þær á pönnu. Kryddar þær með salti, sítrónupipar, setur þær svo til hliðar, skerð tómatana í tvennt og steikir á sömu pönnu. Gott að krydda tómatana með hvítlaukskryddi og pipar. Næst byrjar þú að sjóða eggin eins og þú kýst að hafa þau. Ég sauð mín í 6 mínútur til að fá rauðuna ósoðna.
Gott að bera réttinn fram í skál líkt og súpuskál, í botninn á skálinni setur þú um 150 g gríska jógúrt, hvítlauksrif eftir smekk, salt og pipar um 1/2 tsk af hvoru kryddi. Blandar þessu saman í skálinni og raðar svo innihaldinu í skálina ofan á grísku jógúrtina. Kjúklingabaunir, tómatar, gúrkubitar, eggin, salatið.
Um að gera að leika sér með innihaldið í þína skál.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments