Prótein ís
- Helga Gunnarsdottir
- 12 hours ago
- 1 min read
Hér er uppáhalds prótein ísinn minn sem ég geri í ísvél. Þessi grunnur er einfaldur, próteinríktur og góður og einfalt að bæta við til dæmis berjum eða einhverju öðru.
Ég er að nota Royal búðingsduftið í ísinn sem mér finnst bæði gefa gott bragð og einnig góða áferð á ísinn. Þau brögð sem ég nota hvað mest eru vanillu, mokka, saltkarmellu, karmellu og jarðaberja. Gaman að breyta til og nota til dæmis jarðabergja duftið og setja jarðaber eða hindber út í ísblönduna.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu.

Innihald:
100 g kotasæla
15 g Royal búðingsduft
25 g próteinduft með vanillubragði
250 ml mjólk
hunang (má sleppa)
Innihaldsefnunum er blandað í ísboxið sem fylgir ísvélinni, ég nota töfrasprota til að blanda öllu vel saman svo það verði engir kekkir í kotasælunni eða próteinduftinu. Ísblandan er svo sett í frysti í um sólahring áður en hún er sett í ísvélina. Ég set stundum smá hunang í lokin á ísnum áður en ég blanda ísnum í ísvélinni í annað sinn (respin).
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó ísinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga





Comments