Partýréttir
- May 15
- 2 min read
Hér eru hugmyndir af 4 einföldum og góðum réttum sem virka vel í partýið þitt.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup en þar færð þú allt í þessa rétti og meira til fyrir partýið þitt.
Ég mæli einnig með fyrir ykkur sem eruð að halda veislur að skoða úrvalið af frosnu vörunum í Hagkaup Skeifunni og Smáralind, þar er ýmislegt sniðugt og gott á veisluborðið.

Réttur 1:
250 g Ostakubbur/feta ostur
1 dós sýrður rjómi 10%
170 g ólífumix
steinselja handfylli
sítrónubörkur
beyglukrydd
1-2 msk hunang
2-3 msk ólífu olía
kex og brauð með að eigin vali
Feta ostinum og sýrða rjómanum blandað saman í matvinnsluvél, ólífurnar skornar gróft niður og settar ofan á. Toppað með smátt skorinni steinselju, sítrónuberki, beyglukryddi, hunangi og ólífuolíu.
Réttur 2:
Frosnir blómkálsbitar
gráðostur
klettasalat frá Vaxa
hot wings sósa
Blómkálið hitað í ofni í 20 mínútur, settir á disk og niðurskorna gráðostinum dreift yfir ásamt klettasalati og hot wings sósu.
Réttur 3:
Kartöfluflögur með balsamic vinegar bragði eða þær sem þú kýst
100 g parma skinka
lávarður eða camanbert
rifinn parmesan ostur
heitt hunang
sprettur frá Vaxa sem skraut
Kartöfluflögunum raðað á ofnplötu, parmaskinkunni raðað yfir ásamt ostunum, toppað með hunanginu. Hitað við 180 gráður í 5 mínútur. Það má sleppa því að hita réttinn en mér finnst það skemmtilegt, þá límist snakkið aðeins saman við ostinn.
Réttur 4:
Gúrka
rjómaostur með svörtum pipar
reyktur lax
rauðlaukur
dill frá Vaxa
Magnið af innihaldinu fer eftir því hversu mikið þú ætlar að búa til. Byrjið á að skera gúrkurnar í um 1 cm bita, raðið á disk og smyrjið með rjómaostinum. Setjið næst reykta laxinn ofan á og toppið með bita af rauðlauki og dilli.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttina til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments