Ostakökur með páskakaungum
- 1 day ago
- 1 min read
Klassískur páskalegur eftirréttur sem slær rækilega í gegn. Páskaungarnir eru líka skemmtilegt borðskraut á páskaborðið og tilvalið að fá krakkana til að aðstoða sig við að búa þá til.
Uppskriftin passar í 4 - 6 glös en fer eftir stærð glasanna.
Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.

Innihald í ostakökur:
200 g kanilkex
75 g smjör brætt
300 ml rjómi
300 g vanilluskyr
2-3 msk Dulce de leche karmellusósa
Páskaungar:
Saltkringlur
gulir súkkulaðidropar eða hvítt súkkulaði og gulur gel matarlitur
smatries og svört sesamfræ (sem eru í beyglu kryddi).
Byrjið á því að mylja kanilkexið í matvinnsluvél, (takið örlítið kex til hliðar til að skreyta með í lokin, ca. 2 msk). Bræðið smörið, blandið kexinu og smjörinu saman og setjið í glösin. Þeytið rjómann og blandið saman við vanilluskyrið. Setjið rjómablönduna ofan á kexblönduna. Skiljið smá rjómablöndu eftir og blandið saman við karmellusósuna, rúmlega hálfur dl rjómablanda á móti 2 msk karmellusósu. Setjið karmellurjómablöndu ofan á hverja skál og skreytið svo með kex mulningi. Kælið ostakökurnar í um 1 klst áður en þær eru bornar fram.
Gulu súkkulaðidroparnir eru bræddir yfir vatnsbaði og á meðan er saltkringlunum raðað á bökunarpappír. Smartiesið er skorið í tvennt, það er hægt að nota alla litina eða bara appelsínugulan og rauðan til að líkja eftir gogginum. Gulu súkkulaði sprautað inn í saltkringluna, skreytt með smarties og svörtu sesamfræi.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments