top of page

Ostaköku grautur

Leiðin að hjartanu liggur í gegnum matinn og ég hvet þig til að búa þennan morgungraut til fyrir sjálfan þig eða einhvern sem er þér kær.

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Hagkaup, þar færð þú allar vörurnar sem ég er að nota.

Innihald fyrir einn:

2 stk weetabix prótein kökur

1 tsk sukrin gold / 5 g eða önnur sæta

100 ml léttmjólk eða önnur mjólk

120 g vanilluskyr

25 g hvítt súkkulaðipróteinduft

5 g acaí duft frá Raw nice til skrauts

Þú byrjar á því að brjóta niður tvær weetabix kökur í skál ásamt sukrin gold og léttmjólkinni. Stappaðu þessu saman í skál og þjappaðu niður líkt og botn í ostaköku. Í aðra skál blandar þú saman próteinduftinu og skyrinu og hellir því svo yfir botninn. Að lokum setur þú eina tsk af acaí dufti ofaná sem skraut.

Næring í kökunni: Kolvetni: 45.9 g Prótein: 42 g Fita: 3.9 g Trefjar: 10 g

Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page