top of page

Kalkúnabolluskál

  • 3 hours ago
  • 1 min read

Þið vitið hvað ég elska kalkúnabollur mikið og reyni að borða þær á sem fjölbreyttasta máta. Hér er grísk skál með kalkúnabollum.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup en þar færð þú allt í þennan rétt og kalkúnahakkið er í frystinum.


Kalkúnabollur uppskrift: 

150 gr spergilkál

600 gr kalkúnahakk

2 stk súrdeigsbrauðsneiðar / 70 gr

100 gr eggjahvítur

100 gr rifinn ostur

100 gr kotasæla

1 tsk sítrus salt frá Badia

1 tsk kjúklingakrydd Angel's wings


Perluspelt soðið skv. leiðbeiningum


Salat: 

gúrka

litlir tómatar

rauðlaukur

ólífur 

feta ostur ásamt smá af olíunni 


Jógúrtsósa:  

250 g grísk jógúrt 

safi úr hálfri sítrónu 

1 - 2 tsk hvítlaukur smátt skorinn

1 tsk lime salt 

2 - 3 msk smátt skorin steinselja frá Vaxa 

kóríander frá Vaxa (má sleppa


Ég kaupi kalkúnahakk frosið í Hagkaup og læt það þiðna við stofuhita eða í ísskáp yfir nótt.

Byrjið á að gufusjóða spergilkál í 10 - 15 mín. Ég byrja oft á þessu og læt spergilkálið kólna aðeins og mauka það svo í matvinnsluvél.


Ristið tvær brauðsneiðar frekar mikið, 2-3 sinnum og mauka þær svo í blandara svo þær verði að brauðmylsnu. Því næst er öllu hrært saman í hrærivél (eða höndunum) og litlar bollur mótaðar. Fyrir þessa skál hef ég bollurnar í minni kantinum.


Bollurnar eru settar á bökunarplötu og hitaðar við 190 gráður í 25 mínútur.


Á meðan sýður þú perluspeltið, skerð niður salatið og útbýrð jógúrtsósuna.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga







 
 
 

Comments


bottom of page