Hrísgrjónasalat
- 10 minutes ago
- 2 min read
Þessi uppskrift er í sérstöku uppáhaldi hjá minni fjölskyldu. Uppskrift með sögu sem ég set hér neðst í uppskriftina.
Ég hef mikið verið að notast við Salling vörurnar frá því þær komu á markað og líkað mjög vel við gæðin. Salling eru danskar vörur sem koma í fjölmörgum vöruflokkum, vottaðar gæðavörur á góðu verði.
Þessi réttur hentar mjög vel í miðri viku þegar lítill tími er í eldamennsku. Uppskriftin er stór og að ástæðu, þetta er frábært í nestisboxið daginn eftir.

Innihald:
3 bollar hrísgrjón (ósoðið magn) 600 g
2 dósir túnfiskur í vatni - 280 g
Ólífur 2 box - 270 g
Salat ostur / feta ostur - 140 g eða meira
litlir tómatar 2 box - 500 g
5 harðsoðin egg
1 dós sýrður rjómi - 180 g
1 dl balsamic edik
salt, pipar, engifer um 1 - 2 tsk af hverju kryddi
Gott að bera fram með brauðbollum frá Salling og salatblöndu frá Vaxa.
Þú byrjar á því að sjóða hrísgrjónin. Ég var að notast við parboiled hrísgrjón frá Salling því þau taka styttri tíma í suðu, en það má nota hvernig hrísgrjón sem er. Hrísgrjónin eru svo kæld örlítið áður en öllu er blandað saman í skálinni. Ég slumpa yfirleitt balsamic edikinu yfir salatið en mældi það núna fyrir þessa uppskrift. Magnið er um 1 dl en það má setja meira eða minna.

Næring í 100 g
Kolvetni: 17,2 gr
Prótein: 6,3 gr
Fita: 5,3 gr
Trefjar: 0,5 gr
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó salatið til.
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða hrísgrjónasalat.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga
Sagan af salatinu: Við höfum verið í húsaskiptum undanfarin ár og eitt sumarið skiptum við við fjölskyldu í suður Frakklandi, við flugum til Parísar, við tók bið á flugvellinum og svo lestarferð þar sem við fórum örlítið sunnar en Bordeaux. Svo leigubílaferð í húsið og vorum komin þangað loksin eftir langan dag á ferðalagi seint að kvöldi og auðvitað banhungruð. Næsta verk var að finna út úr matarmálum fyrir þreytta ferðalanga. Í húsinu beið okkar miði þar sem fjölskyldan bauð okkur velkomin í húsið, þau vissu að við yrðum seint á ferð svo þau skildu eftir þetta salat fyrir okkur í ísskápnum ásamt ísköldu hvítvíni. Við vorum öll sammála um að þetta væri besta salat sem við höfðum smakkað og ég var ekki lengi að fá uppskriftina að því. Ótrúlega fljótlegt og einfalt. Ég var hins vegar ekki viss hvort þetta væri bara svona réttur sem væri nostalgíu réttur hjá okkur eftir frábært sumarfrí eða hvort þetta væri eitthvað sem fólki myndi líka almennt við. En nýlega var ég beðin um uppskriftina að salatinu eftir að hafa verið með það í boði svo hér er það komið á heimasíðuna.



Comments