top of page

Mozzarella páskakanínur

  • 11 minutes ago
  • 1 min read

Þessar mozzarella páskakanínur eru fullkomnar í páskabrunchinn.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald:

Snittubrauð

Stórar mozzarella kúlur

mozzarella perlur

Cheddar ostur sem gulrætur

ferskt dill í skraut

kirsuberjatómatar

svört sesamfræ (er í beyglukryddi)

rjómaostur með tómötum og basilíku

grænt pestó

fersk basilíka sem skraut


Skerið snittubrauðið í hæfilega þykkar sneiðar, örlítið á ská svo hver sneið verði nógu stór. Sneiðarnar eru ristaðar í ristavél eða í ofni við 180 gráður í um 10-15 mín eða þar til þær eru ristaðar.


Helmingur er smurður með pestói og hinn helmingurinn með rjómaostinum. Búkurinn á páskakanínunum er búinn til úr stóru mozzarella kúlunum, þær skornar í sneiðar og skornar í hringi með skeið eða álíka áhaldi. Litlu mozzarella kúlurnar eru notaðar í hausinn og eyrun.


Gulræturnar eru mótaðar úr cheddar osti, dill einnig notað sem skraut í gulræturnar. Augun eru svört sesamfræ sem ég tek úr beyglukryddi. Kirsuberjatómatar eru skornir í tvennt, öðrum helmingnum snúið við og þá myndast hjarta. Hjarta kanínan er einnig skreytt með ferskri basilíku.


Afskurðurinn af mozzarella ostinum rennur ljúflega niður í litla maga eða sniðugt að nota á pizzu.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.



Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



 
 
 

Comments


bottom of page