Maísdipp
Hér er ofur einföld uppskrift af maísdippi sem sló rækilega í gegn á matreiðslunámskeiði sem ég hélt á dögunum í Hagkaup í Smáralind
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.

Innihald:
400 g frosinn maís frá Salling
1 taco mix bréf frá Salling
500 g kotasæla
1 bakki Argentina kjúklingabringur frá Holta (300 g)
100 - 200 g rifinn mozzarella ostur
Gott að njóta með nachos snakki, prótein snakki, kálblöðum frá Vaxa eða vefjum
Þú byrjar á því að afþýða maísinn með því að láta vatn renna á hann. Maísinn er svo steiktur á pönnunni og kryddaður með 1 bréfi af taco kryddi. Kjúklingurinn skorinn smátt og settur út á pönnuna. Kotasælan er maukuð í matvinnsluvél eða með töfrasprota og henni bætt út á pönnuna ásamt rifna ostinum. Látið ostinn bráðna á pönnunni í nokkrar mínútur og berið strax fram.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments