Sesarsalat vefjur
- 11 minutes ago
- 2 min read
Á mínu heimili hafa sesarsalat vefjurnar verið mjög vinsælar. Þá útbý ég sesarsalat með kjúklingi sem svo er sett inn í tortilla vefju.
Hér er örlítið breytt útgáfa af þeirri uppskrift, sesarsalat en notast við kalkúnahakk sem sett er á vefjur og bakað í ofni. Salatið er svo sett ofan á vefjuna þegar hún kemur úr ofninum.
Mjög einfalt og fljótlegur réttur. Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup

Innihald:
Vefjur frá Salling
600 gr kalkúnahakk
romain salat
seasar salat sósa frá Salling
brauðteningar (má sleppa)
litlir tómatar (má sleppa)
kjúklingakrydd
parmesan ostur
rotisserie kjúklingakrydd frá Badia
franskar kartöflur (má sleppa)
Ég kaupi kalkúnahakk frosið í Hagkaup og læt það þiðna við stofuhita eða í ísskáp yfir nótt. Það er líka hægt að setja hakkið í volgt vatn þá þiðnar það á 1-2 klst.
Ég deildi 600 g kalkúnahakkinu niður á 8 vefjur og þá fór um 73-75 g af hakki á hverja vefju. Það má einnig hafa meira hakk á hverri vefju, fer eftir því hversu margar vefjur þú vilt fá.
Vefjurnar eru svo kryddaðar með kjúklingakryddi, ég elska rotisserie kjúklingakryddið og nota það mikið. Vefjurnar eru svo settar inn í ofn og hitaðar við 180 gráður í um 12 - 15 mínútur.
Á meðan er romain salatið skorið niður, ásamt vorlaukurinn, tómatar og brauðteningar ef þú ert með það. Blandið saman í skál og hellið rifnum parmesan osti yfir ásamt seasar salat dressingunni.
Þegar vefjurnar eru tilbúnar er rétturinn borinn fram með salatinu og frönsku kartöflunum. Salat sett inn í hverja vefju.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments