Fljótlegt Shepherds pie
- 10 minutes ago
- 1 min read
Fljótleg útgáfa af Shepherds pie með stroganoff grýtu frá Toro ásamt kartöflumúsinni frá Toro
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu.

1 laukur (má sleppa)
500 g nautahakk
1 poki stroganoff grýta frá Toro
2 pokar kartöflumús frá Toro
rifinn ostur eða parmesan ostur
salt
400 ml mjólk í grýtuna
400 ml mjólk í kartöflumúsina
1 msk smjör
Byrjið á að steikja laukinn á pönnu, bætið svo nautahakkinu út á pönnuna og steikið það í gegn. Saltið með smá salti. Bætið því næst stroganoff grýtunni út á pönnuna ásamt vatni og mjólk eftir leiðbeiningum. Leyfið þessu að malla í um 5 - 10 mínútur þar til sósan hefur þykknað. Setjið stroganoff blönduna í eldfast mót.
Kartöflumúsin er útbúin í potti. Setjið vatn í pottinn ásamt smjöri, látið þetta ná suðu, slökkvið undir og bætið mjólkinni út í pottinn ásamt kartöflumúsarduftinu, hrærið vel saman. Kartöflumúsin er svo sett yfir stroganoff blönduna í eldfasta mótinu, toppað með osti eða parmesan osti ásamt smá salti. Hitið í ofni í um 10 mínútur við 180 gráður.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments