top of page

Bananakökur

  • 19 hours ago
  • 1 min read

Hér eru próteinríkar bananakökur sem smellpassa í nestisboxið. Góðar einar og sér eða með smjöri og osti.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við QNT


Innihald:

3 þroskaðir bananar 360 g

165 g hveiti (2,5 dl)

1 tsk matarsódi

1 tsk lyftiduft

2 egg

100 g skyr

60 g QNT próteinduft með vanillu- eða bananabragði

70 g suðusúkkulaði (má sleppa)


Byrjið á að stappa bananana og blandið svo restinni af innihaldefnunum út í skálina. Mér finnst best að hræra þessu öllu saman í hrærivél en það er einnig hægt að gera í höndunum. Ég setti smá súkkulaðibita út í deigið en það má einnig sleppa því.


Setjið deigið í 12 kökur á bökunarpappír, deigið lekur aðeins til hliðar og þær klessast saman þegar þær eru bakaðar, en það er alveg eins og það á að vera. Fullkomlega ófullkomnar.

Kökurnar eru bakaðar við 180 gráður í 15 mínútur.


Næring í 100 g með súkkulaðinu

Kolvetni: 32 g

Prótein: 13,4 g

Fita: 5,4 g

Trefjar: 1,7 g


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó kökurnar til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

 
 
 

Comments


bottom of page