top of page

Marineraður mozzarella

  • 19 hours ago
  • 1 min read

Að marinera mozzarella ost kemur skemmtilega á óvart. Þennan rétt má í raun nota á margt, á brauð, út á salat eða pizzuna. Ég er að nota bæði Mozzarella kúlur og perlur en það er í fínu lagi að nota tvær dósir af annarri hvorri tegundinni.


Innihald:

Mozzarella kúlur 1 dós

Mozzarella perlur 1 dós

1/2 tsk oregano

1/2 tsk timian

1/2 tsk chilli

1/2 tsk salt

1/2 tsk pipar

1 -2 hvítlauksrif

sólþurrkaðir tómatar 1/2 dl smátt niðurskornir

1/2 - 1 dl olía, af sólþurrkuðu tómötunum eða ólífuolía

fersk basilíka niðurskorin, 5 -6 lauf


Setjið innihaldsefnin í krukku eða box sem hægt er að loka, hristið krukkuna til að blanda innihaldinu saman. Gott að láta blönduna bíða í ísskáp í 1-2 klst áður en rétturinn er borinn fram.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.



Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comments


bottom of page