Mangókjúklingur með saltkexi
- 1 day ago
- 2 min read
Þessi uppskrif er gömul og góð frá Berglindi vinkonu, en margir kannast eflaust við uppskriftina.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Ljúfa líf.

Innihald:
3 - 4 kjúklingabringur (800 g)
2 sætar kartöflur 1000 g
200 g mangó chutney
100 g spínat
1 krukka feta ostur 125 g
olía af feta ostinum 1 dl
Utvalda havsaltade kex 18 - 20 stk
salt og pipar
rotisserie chicken kjúklingakrydd frá Badia
Mangó hvítlaukssósa:
1 dós sýrður rjómi
2 - 3 msk mangó chutney
1 - 2 hvítlaukrif
smá salt
Byrjið á því að skera sætu kartöflurnar í þunna bita, kryddið með salti og pipar. Takið um 1 dl af olíu af feta ostinum og hellið yfir sætu kartöflurnar. Setjið svo um helminginn af feta ostinum yfir kartöflurnar, þetta fer svo inn í ofn á 200 gráður í um 20 - 25 mínútur (eða lengur), á meðan kjúklingurinn er skorinn í litla bita, kryddaður og steiktur í gegn. Mangó chutneyinu er svo blandað saman við kjúklinginn.
Sætu kartöflurnar eru svo teknar út úr ofninum, spínatið sett yfir kartöflurnar, svo kjúklingurinn. Utvalda saltkexið er svo mulið yfir kjúklinginn og restinni af feta ostinum dreift yfir allan réttinn. Gott að setja álpappír yfir eldfasta mótið, þetta fer svo aftur inn í ofn á 200 gráðum í 20 - 30 mínútur eða þar til gaffall rennur auðveldlega í gegnum sætu kartöflurnar.
Gott að bera réttinn fram með nan brauði og mangó hvítlauks sósu.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.

Næring í 100 g
Kolvetni: 18,4 g
Prótein: 12,1 g
Fita: 7,9 g
Trefjar: 1,6 g
Endilega láttu mig vita ef þú prófar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments