Lasagne með hvítlauks og svartpiparkotasælu
- 3 days ago
- 2 min read
Updated: 2 days ago
Lasagne er klassískur réttur sem allir elska, hér er ég að notast við nýja útgáfu af kotasælu sem er bragðbætt með hvítlauk og svörtum pipar. Nýja kotasælan setur algjörlega punktinn yfir i-ið í þessum rétti.
En með því að nota kotasælu í þennan rétt er hann mun próteinríkari en með hvítu sósunni sem sumir nota á milli laga. Ég er einnig að nota kotasæluna með chili og sriracha sem ídýfu með grænmeti sem meðlæti. Einstaklega sniðugt að mauka kotasæluna og bera fram sem sósu með grænmeti. Einnig er hægt að nota hana inn í vefjur og í aðra rétti.

Innihald:
500 g nautahakk
2 dósir kotasæla með hvítlauk og svörtum pipar
4 - 500 g pastasósa
150 g rifinn ostur
9 stk lasanja plötur (fer eftir stærð á fati)
1 laukur 150 g
1 matskeið olía
1stk kjötkrafts tengingur
250 ml vatn
salt, pipar, hvítlaukskrydd, chilli krydd, oregano, timían um 1 tsk af hverju kryddi.
fersk basilíka (má sleppa)
Meðlæti: 1 dós chili sriracha kotasæla og paprikur.
Byrjið á því að skera lauk smátt og steikja upp úr olíunni, bætið hakkinu á pönnuna og steikið það og kryddið. Þegar hakkið er gegnumsteikt er pastasósunni bætt út á pönnuna. Leysið kjötteninginn upp í 250 ml af heitu vatni og bætið út á pönnuna. Bætið fersku basilíkunni út á pönnuna. Kotasæludósirnar eru maukaðar með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
Smá hluti af kjötsósunni er settur í botninn á eldföstu móti, partur af kotasælunni þar yfir og svo pastaplötur þar ofan á, endurtakið þar til kjötsósan klárast. Setjið að lokum rifna ostuinn efst. Rétturinn er hitaður við 190 gráður í 30 - 35 mínútur.
Það má einnig blanda kotasælunni út í kjötsósuna ef einhverjum finnst það þægilegra.
Það er sniðugt að máta pastaplöturnar í eldfasta mótið fyrst. Misjafnt er hvort fólk vill nota 2 eða 3 lög af pasta plötum.
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Lasagne með hvítlauks- og svartpiparkotasælu.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Næring í 100 g
Kolvetni: 10,3 g
Prótein: 12,5 g
Fita: 7,2 g
Trefjar: 0,5 g
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments