top of page

Kökupinnar

  • 8 hours ago
  • 1 min read

Nýjasti meðlimur Ballerina fjölskyldunnar er Ballerina Brownie þar sem brúna hlið Ballerínunnar fær heldur betur að njóta sín.


Ballerina brownie kexið er einstaklega sniðugt að nota í þessa ofur einföldu kökupinna. Og trúið mér þetta er eitthvað sem allir geta gert og skemmtilegt að gera þessa kökupinna með krökkunum.


Innihald:

2 pakkar Ballerina brownie

100 g rjómaostur

200 g siríus suðusúkkulaði

kökuskraut (má sleppa)

kökupinnar


Þú byrjar á því að mylja Ballerina brownie kexið smátt niður í matvinnsluvél. Næst blandar þú rjómaostinum saman við, annað hvort í höndunum eða í matvinnsluvélinni. Þú myndar svo kúlur úr deiginu þar sem hver kúla er um 25-30 grömm. Það er mjög gott að kæla kúlurnar örlítið í ísskáp á meðan þú byrjar að bræða suðusúkkulaðið.


Suðusúkkulaðið er brætt yfir vatnsbaði eða í 10/20 sekúndur í örbylgjuofni og svo hrært reglulega í því á milli. Þú byrjar á því að stinga kökupinna prikinu örlítið í brædda súkkulaðið og stingur svo pinnanum í kúluna, leyfir þessu að harna örlítið í nokkrar mínútur áður en þú húðar svo sjálfan kökupinnan. Skreytið með kökuskrauti ef vill. Gott að geyma kökupinnana í kæli.


Kúlurnar sjálfar er hægt að gera deginum áður og einnig geymast kökupinnarnir vel í kæli í 2-3 daga.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga








 
 
 

Comments


bottom of page