top of page

Kotasæluklattar

  • 11 minutes ago
  • 1 min read

Ef þig vantar eitthvað einfalt og gott í nestisboxið þá eru þessir kotasæluklattar eitthvað fyrir þig. Klattana er hægt að borða eintóma en einnig hægt að skera þá í tvennt og setja álegg á milli.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn


Innihald í 9 - 10 klatta

3 egg

250 g kotasæla

2 tsk lyfiduft

150 g hveiti / einn bolli

70 g rifinn ostur ofan á klattana

1/2 laukur (má sleppa)

fersk steinselja 2-3 msk (má sleppa)

salt, hvítlaukskrydd


Innihaldsefnunum blandað saman í skál, á þessu stigi er hægt að blanda auka innihaldsefnum út í deigið. Ég setti lauk og ferska steinselju, en einnig er hægt að setja skinku, pepperoni eða hvað sem er.

Klattarnir eru settir á ofnplötu, 9 - 10 klattar. Ostur settur ofan á hvern og einn. Klattarnir eru bakaðir í ofni við 200 gráður í 20 - 23 mínútur.


Næring í 100 g

Kolvetni: 23,6 gr

Prótein: 16,2 gr

Fita: 8,7 gr

Trefjar: 1,1 gr


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comments


bottom of page