top of page

Kotasæluís

Þessi kotasæluís er búinn að vera að gera allt vitlaust á tiktok og er algjörlega kominn í uppáhald hjá börnunum mínum. Ég mæli með því að gera tvöfalda uppskrift því það er leiðinlegt að bíða eftir næsta skammti úr frystinum.

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS - gott í matinn.

Innihald:

200 g kotasæla

150 g frosin jarðaber

10 g hunang

safi úr hálfi límónu


Ég hef verið að gera ísinn án próteindufts þar sem börnin mín borða mikið af honum. En að sjálfsögðu er hægt að bæta próteindufti út í ísinn, t.d. 30 g af próteindufti með vanillu- eða jarðaberjabragði.

Það er fínt að láta jarðaberin þiðna örlítið á borði, þeim er svo blandað saman við kotasæluna, hunangið og límónu safann í blandara. Einnig er hægt að nota fersk jarðaber. Þegar ísinn er frystur er gott að hræra aðeins upp í honum inn á milli. Næring í 100 gr af ísnum:

Kolvetni: 7,8 g

Prótein: 7,7 g

Fita: 2,7 g

Trefjar: 0,7 g Endilega láttu mig vita ef þú prófar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga





bottom of page