Klassískar kjötbollur í rjómasósu
- 1 hour ago
- 2 min read
Þessar kjötbollur eru svo einfaldar og góðar, algjörlega klassískar og henta vel á bolludaginn sjálfan. Mjög sniðugt að gera jafnvel tvöfalda uppskrift og eiga afgang daginn eftir.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald:
500 g nautahakk
2 egg
2 ristaðar brauðsneiðar eða 50 g brauðraspur
100 g kotasæla (1 dl)
100 g rifinn ostur (2 dl)
1 dl púrrulaukssúpu duft frá Toro
1 tsk salt og pipar
Sósan:
250 -350 ml matreiðslurjómi
laukur smátt skorinn
2 hvítlauksrif
1-2 tsk kjörkraftur eða einn teningur
1 dl heitt vatn
1 tsk dijon sinnep
3 msk rautt pestó
olía
fersk basilíka
salt og pipar
Blandið innihaldsefnunum saman í skál með höndunum eða í hrærivél. Mótið litlar bollur, setjið á bökunarplötu. Hitið við 190 gráður í 25-30 mínútur. Einnig er hægt að steikja bollurnar á pönnunni, taka þær svo til hliðar á meðan sósan er búin til. Mér finnst þægilegra að hita bollurnar í ofninum og geta þá byrjað strax að útbúa sósuna á pönnunni.
Skerið laukinn smátt niður og steikið upp úr olíu í nokkrar mínútur, bætið þá smátt skornum hvítlauk á pönnuna og steikið áfram. Leysið kjötkraftinn upp úr 1 dl af heitu vatni og hellið út á pönnuna, bætið matreiðslurjómanum út á pönnuna, fyrst 2 dl og svo bæti ég við rjómann þegar líður á. Sjóðið sósuna á vægum hita og bætið svo dijon sinnepi út á pönnuna. Ég bæti á rjómann og set einnig rautt pestó, smakkið til með salti og pipar og bætið við rjóma ef sósan verður of þykk.
Það má mauka sósuna með töfrasprota ef þið eruð með kvartandi börn, einnig má sleppa lauknum og nota til dæmis lauk krydd í staðinn.
Þegar kjö-tbollurnar koma úr ofninum eru þær settar út á pönnuna og ferskri basilíku bætt út á í lokin.
Með kjötbollunum var ég með ofnbakaðar kartöflur, brokkolí og sultu.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó bollurnar til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga





Comments