top of page

Kjúklingur með kasjúhnetum

  • 21 hours ago
  • 1 min read

Þessi kjúklingaréttur er svo einfaldur og góður, fullkominn í miðri viku þegar ekki gefst mikill tími í eldamennsku.


Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.


Innihald:

3 -4 kjúklingabringur (ég var með 750 g)

1 laukur

2 hvíutlauksrif

100 g kasjúhnetur

1 rauð paprika

1 græn paprika

20 g engifer rifið

olía til steikingar ásamt pipar

hrísgrjón sem meðlæti

sesamfræ (má sleppa)

vorlaukur smátt skorinn (má sleppa)


Sósan:

4 - 5 msk soya sósa

2 msk hunang

2 msk hrísgrjónaedik

1 msk fiskisósa


Þú byrjar á því að brúna kasjúhneturnar á pönnunni og setur þær svo til hliðar. Steikir kjúklinginn á pönnunni og kryddar með pipar og um 1 msk soya sósu. Á meðan kjúklingurinn er að steikjast er gott að útbúa sósuna á sama tíma. Þegar kjúklingurinn er fullsteiktur er hann settur til hliðar og laukurinn steiktur á sömu pönnu í um 3 - 4 mínútur. Hvítlauknum er bætt út á og þetta steikt áfram í um 1 mínútu. Þá er paprikunni bætt út á pönnuna og steikt áfram í nokkrar mínútur. Í lokin er svo kjúklingnum bætt út á pönnuna ásamt kasjúhnetunum. Sósunni er hellt yfir réttinn og þetta borið fram með hrísgrjónum og smátt skornum vorlauk og sesamfræjum.


Ég skar niður ferska steinselju og setti út í hrísgrjónin.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga


Comments


bottom of page