Kjúklingasalat með vínberjum
- Apr 9
- 1 min read
Updated: Apr 27
Þetta kjúklingasalat minnir mig einna helst á ostassalat nema þetta er stútfullt af próteini. Einstaklega ferskt og gott. Innihaldið er ekki heilagt, það má breyta og skipta. Mér finnst samt vínberin vera algjörlega ómissandi.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup þar sem þú færð allar vörurnar sem ég er að nota.

Innihald:
3 - 4 kjúklingabringur (875 g)
2 paprikur (400 g)
400 g rauð vínber
60 g blaðlaukur
100 g feta ostur
200 g grísk jógúrt
safi úr einni límónu
salt og pipar eftir smekk
rotisserie chicken kjúklingakrydd frá Badia
Þú byrjar á að krydda kjúklinginn með kjúklingakryddi og elda hann, mér finnst þægilegt að grilla hann en það má einnig steikja hann. Á meðan kjúklingurinn er að eldast eru paprikurnar skornar í litla bita og vínberin skorin í tvennt eða fernt eftir því hverju þú nennir. Skerð einnig blaðlaukinn og blandar þessu saman í skál ásamt feta ostinum. Blandið saman grískri jógúrt og safa úr einu lime i og hellið yfir salatið og blandið saman.
Mér finnst gott að bera kjúklingasalatið fram með fersku salati sem ég set í botninn á disknum, einnig er gott að hafa súrdeigs snittubrauð með.
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Kjúklingasalat með vínberjum.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.

Næring í 100 g
Kolvetni: 6,6 g
Prótein: 13,6 g
Fita: 2,8 g
Trefjar: 1 g
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments