top of page

Kjúklingasalat

  • Writer: Helga Gunnarsdottir
    Helga Gunnarsdottir
  • 10 hours ago
  • 1 min read

Þetta salat er svo gott, ferkst og skemmtilegt. Ég steikti kjúklingabringur til að nota í salatið en einnig er hægt að nota grillaða kjúklinginn úr Hagkaup í salatið.


Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Hagkaup, þar sem þú færð allt í þennan rétt.


Innihald:

Kjúklingabringur 3 stk 700 g má vera meira

hvítkál ca. hálfur haus 350 g

2 gulrætur 100 g

1 gúrka 350 g

2 epli 200 g

2 stilkar vorlaukur 50 g

200 ml Sesam ginger teryaki sause frá Stonewall Kitchen

sesamfræ til skrauts (má sleppa)

Þú byrjar á því að skera kjúklingabringurnar í litla bita og steikja þær á pönnu, gott að krydda þær upp með salti og pipar. Á meðan kjúklingurinn er á pönnunni er allt innihaldið er skorið smátt niður og því blandað saman í skál.


Kjúklingurinn er látinn standa aðeins á pönnunni svo hann kólni örlítið áður en honum er svo blandað saman við salatið. Að lokum er sósunni hellt yfir salatið, magnið fer svolítið eftir smekk.


Með salatinu var ég með hrísgrjón til að auka við kolvetnamagnið í máltíðinni en einnig er sniðugt að hafa sætar kartöflur.


Næring í 100 g

Kolvetni: 8,7 g

Prótein: 11 g

Fita: 0,9 g

Trefjar: 1,1 g


Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða kjúklingasalat.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga



Comments


bottom of page