top of page

Kanilsnúðar

Þessir kanilsnúðar eru bæði einfaldir og fljótlegir, sniðugir til að grípa með sér í nesti eða hafa með kaffinu. Það er mjög skemmtilegt að baka þá með börnum því það er enginn biðtími og engin hefun. Það þarf bara að hræra deiginu saman, rúlla út í snúða og skella beint í ofninn.


Vanillukremið er skemmtileg tilbreyting við venjulegt krem sem stundum er sett á kanilsnúða. Snúðarnir eru góðir bæði með kremi og án þess. Ég mæli samt með því að setja kremið bara á þá snúða sem á að borða hverju sinni og geyma kremið í ísskáp ef ætlunin er að geyma þá yfir nótt. Kanilsnúðar eru alltaf bestir nýbakaðir.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald í 14-16 snúða:

-2 bollar hveiti/275 gr

-1 ½ bolli hreint Ísey skyr/365 gr

-1 msk lyftiduft/15 gr

-Smá salt (½ tsk)


-2 msk eggjahvíta/30 gr til penslunar

-2 msk sykur (eða gervisæta)

-1 msk kanill


Vanillukrem:

-1 lítil dós Ísey vanilluskyr -50 ml mjólk (ég notaði léttmjólk)

Setjið hveitið, skyrið, lyftiduftið og saltið saman í skál og hnoðið saman, mér finnst þægilegast að nota hrærivélina í þetta en það er líka hægt að hræra þetta í höndunum. Fletjið deigið út í ferhyrning. Penslið deigið með eggjahvítu, stráið kanilsykrinum yfir og rúllið deiginu upp. Skerið niður í 14-16 snúða. Raðið á bökunarpappír með hæfilegu bili á milli snúða.

Bakið við 180 gráður í 15 -18mín. Ég nota blástursofn.


Vanillukremið er gert með því að blanda saman Ísey vanilluskyri og mjólk. Það er hægt að setja vanillustevíu út í það ef fólk vill fá meiri sætu eða vanilluduft.

Það er gott að hafa í huga að þessi uppskrift er gerð með það í huga að bæta próteini í næringuna, deigið á það til að vera klístrað og blautt, bætið þá aðeins meira hveiti við.

Næring í 100 gr af snúðum: Kolvetni: 38,1 gr Prótein: 11,4 gr Fita: 0,5 gr Trefjar: 1,5 gr

Næring í 100 gr vanillukrem: Kolvetni: 4,1 gr Prótein: 8,7 gr Fita: 0,5 gr Trefjar: 0 gr Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga, kanilsnúðar / vanillukrem.

(Skráningin á við um tilbúna kanilsnúða og tilbúið krem.)


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó snúðana til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga


bottom of page