top of page

Jólatré með Jóla Brie

Fullkominn réttur til að bjóða upp á í jólaboðinu, jólahittingnum eða einfaldlega til að njóta heima með fjölskyldunni á aðventunni. Í þessa uppskrift er ég að sjálfsögðu að nota skyrpizzu deigið sem er svo einfalt, þarf ekkert að hefast bara henda þessu saman og baka. Mjúkar brauðbollur með Jóla Brie í miðjunni.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald í eitt tré:

-2 bollar hveiti / 280 g

-2 bollar hreint skyr / 460 g

-1 msk lyftiduft / 15 g

- Jóla Brie / 135 g

- egg til penslunar


Byrjaðu á því að búa til deigið með því að hræra öllu saman nema ostinum. Skiptu deiginu í 30 parta. Skerðu ostinn niður í litla bita, fín stærð er 4 - 5 g ef ostbitarnir eru mikið stærri þá lekur osturinn út úr bollunum. Ostbiti settur inn í deig og kúla mynduð. Raðaðu kúlunum upp sem jólatré, 7 bollur neðst, svo 6 - 5 - 4 - 3 - 2 - 1 og svo tvær sem fætur. Penslið bollurnar með eggi og bakið jólatréð í 10-12 mínútur við 180 gráður. Gott að stilla á grillið síðustu 2-3 mínúturnar. Það er mjög gott að strá fersku rósmaríni yfir tréð og skreyta með því ásamt granateplafræjum. Bollurnar eru bestar nýbakaðar og algjörlega himneskar með smá sultu.

Ég hef prófað að búa tréð til daginn áður og baka svo daginn eftir og það virkar vel.

Næring í 100 g: Kolvetni: 20.8 g Prótein: 10.3 g Fita: 5 g Trefjar: 0.8 g

Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.

Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Jólatré með Jóla Brie.

Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page