top of page

Fylltar kartöflur og paprikur með Amerískri grýtu

  • 2 days ago
  • 2 min read

Einfaldur og góður réttur sem auðvelt er að græja í miðri viku eða hvenær sem er.


Þessi færsla er unnin í samstarfi við Lindsay heildsölu.

Þú færð Toro vörurnar í öllum helstu matvöruverslunum.


Innihald:

1 pakki Amerikansk gryte frá Toro

500 g nautahakk eða annað hakk

4 -5 bökunarkartöflur

3 - 4 paprikur

rifinn ostur

best á nautið krydd


Þú byrjar á því að hita kartöflurnar í ofni með smá olíu og salti ofaná í 40 - 50 mínútur við 200 gráður eða þar til þú getur stungið auðveldlega í gegnum þær með gaffli. Þú steikir svo hakkið og kryddar það með best á nautið kryddinu. Næst blandar þú grýtu pakkanum frá Toro út í hakkið ásamt vatni skv leiðbeiningum 8 dl. Blandan þarf að malla og taka sig við vægan hita í um 20 mínútur.


Þegar kartöflurnar eru tilbúnar eru þær skornar í tvennt og það mesta tekið innan úr þeim en samt þannig að smá veggur sé eftir. Þú setur innihaldið úr kartöflunum til hliðar, við notum það síðar.


Þú fylllir kartöflurnar með grýtu blöndunni og toppar þær með rifnum osti. Næst blandar þú næstum öllu sem kom innan úr kartöflunum saman við restina af grýtunni á pönnunni. Skerð paprikurnar í tvennt og fyllir þær með grýtu/kartöflu blöndunni. Þetta er svo einnig toppað með rifnum osti.


Kartöflurnar og paprikurnar fara svo inn í ofn í 10 - 15 mínútur við 180 gráðu hita eða þar til osturinn er bráðnaður.


Gott að bera réttinn fram með fersku salati og jafnvel hvítlaukssósu, eða annarri léttri sósu að eigin vali.


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.


Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga


 
 
 

Comments


bottom of page