Burrata forréttir
- Helga Gunnarsdottir
- 19 hours ago
- 2 min read
Hér eru nokkrar hugmyndir af léttum og góðum forréttum með litlu burrata ostunum frá MS.
Uppskriftirnar miða við 2 einstaklinga og einfalt að margfalda uppskriftina miðað við þinn fjölda gesta.
Ég er að nota litlu burrata ostana en í hverju boxi eru 2 litlir. Einnig er hægt að nota stóran burrata ost og skipta honum í tvennt.
Þessar uppskriftir eru gerðar í samstarfi við MS Gott í matinn.

Burrata með appelsínum og granateplafræjum
1 box litlir burrata ostar
Klettasalat
1 blóðappelsína
1 appelsína
granateplafræ 50 g
pistasíuhnetur 20 g
salt, pipar, olía og balsamik gljái
Klettsalatinu raðað á disk, appelsínurnar skornar í sneiðar, börkurinn skorinn af, þeim raðað ofan á klettasalatið. Granateplafræjum dreyft yfir ásamt niðurskornum pistasíuhnetum. 1 burrata ostur settur í miðjuna eða hann rifinn niður og dreyft yfir diskinn. Olía og balsamik gljái sett yfir eftir smekk ásamt smá salti og pipar.

Burrata með pestó og klettasalati
1 box litlir burrata ostar
4 msk grænt pestó
klettasalat
1 msk trufflu pestó
rifsber til skrauts
sprettur frá Vaxa til skrauts
grissini brauð stangir eða annað kex
Græna pestóið sett í botninn á glasi eða skál, klettasalatið sett þar fyrir og svo burrata osturinn ofan á klettasalatið. Gott að skera smá gat efst á burrata ostinn og setja trufflu pestóið ofan á ostinn. Það má einnig sleppa trufflu pestóinu og nota sama græna pestóið og í notað var í botninn. Skreytt með rifsberjum, sprettum og grissini brauðstöngum.

Burrata með plómum og parmaskinku
1 box litlir burrata ostar
klettasalat
2 - 3 plómur
4 -5 sneiðar parma skinka
döðlu síróp
Klettasalati raðað á disk, plómurnar skornar niður í sneiðar og steiktar á pönnu á báðum hliðum í nokkrar mínútur, (það má sleppa þessu skrefi) parmaskinkan hituð í ofni í um 10 mínútur eða þar til skinkan er orðin stökk. Plómurnar settar yfir klettasalatið og parmaskinkan svo mulin yfir. Burrata osturinn er rifinn niður í bita eða settur heill í miðjuna. Toppað með döðlusírópi.

Burrata með súrdeigsbrauði og fíkjum
1 box litlir burrata ostar
ristað súrdeigsbrauð
fíkjur
valhnetur
sprettur og ferskt rósmarín
döðlusíróp
Brauðið ristað og burrata osturinn rifinn í tvennt og honum smurt á brauðið. Fíkja skorin niður í sneiðar og sett ofan á ostinn ásamt niðurskornum valhnetum. Skreytt með sprettum, fersku rósmarín og toppað með döðlusírópi.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó kartöflurnar til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga





Comments