Rauðrófur eru eitt það allra jólalegasta í mínum huga. Fyrir utan það að gefa dásamlegan lit þá eru þær góðar fyrir alla og sérstaklega þá sem eru að æfa mikið, algjör ofurfæða. Talið er að rauðrófur geti hjálpað til við að lækka blóðþrýsting og minnkað bólgur í líkamanum. Rauðrófur eru stútfullar af trefjum, vítamínum og steinefnum. Svo er einfaldlega gaman að borða allt sem er bleikt og fallegt. Þessi réttur er bæði fljótlegur og einfaldur, akkúrat það sem við þurfum í desember.
Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við MS - Gott í matinn. MS hefur nú aukið afkastagetuna í framleiðslu á burrata osti svo hann er kominn í verslanir víðar en áður, mörgum til mikillar ánægju. Burrata ostur er fersk mozzarellakúla fyllt með mildri rjómaostafyllingu og er óhætt að segja að hver einasta kúla sé sannkallað listaverk. Mikil vinna fylgir framleiðslunni sem hefur gert það að verkum að ekki hefur verið hægt að anna eftirspurn.
Innihald:
220 g forsoðnar rauðrófur 1 - 2 eftir stærð
150 g kotasæla
220 g kjúklingabaunir (ein dós)
safi úr einni sítrónu 2 - 3 msk
1 - 2 hvítlauksrif
1 tsk kúmín
pipar og smá salt
1 bolli pastavatn
500 g pasta
2 burrata ostar
fersk basilíka sem skraut
Kjúklingabaununum er hellt í sigti og safinn tekinn frá, ég reyni að taka mesta af hýðinu af baununum. Öllum innihaldsefnunum er svo blandað saman í blandara eða matvinnsluvél. Pasta soðið og 1 bolli pastavatn settur úr í blandarann og blandað saman. Ég geymi oft smá auka pastavatn ef mér finnst vanta meira. Það er fínt að smakka sósuna til og salta í lokin ef þér finnst þurfa salt.
Þegar rétturinn er settur á hvern disk er gott að bera hann fram með ólífu olíu og smá salti og pipar svo hver og einn geti fengið sér á sinn disk.
Næring í 100 g
Kolvetni: 18,8 g
Prótein: 7,4 g
Fita: 4,3 g
Trefjar: 1,3 g
Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða bleikt pasta með burrata.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.
Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga
Comments