Baunasalat
- 12 hours ago
- 2 min read
Þetta salat er algjör næringar bomba, stútfullt af trefjum og góðri næringu. Salatið er hægt að borða eitt og sér, setja það inn í vefjur eða sem meðlæti með próteinríkari fæðu, til dæmis kjúklingi, túnfiski eða fiski.
Ég er að notast við vörur frá merkinu Salling sem er nýtt í verslunum Hagkaups. Fyrstu vörurnar eru nú þegar komnar í hillur, en úrvalið mun stækka ört á næstu mánuðum og verða fleiri en þúsund vörunúmer í boði innan nokkurra mánaða.
Salling vörurnar eru þekktar fyrir gott verð, fjölbreytt úrval, og mikil gæði. Fjöldinn allur af vörum Salling bera viðurkenndar gæðavottanir og næringarmerkingar sem þekkjast vel á Norðurlöndunum, svo sem Lykillinn, Ø-merkið fyrir lífræna vottun og norræna umhverfismerkið Svanurinn.
Þessi færsla er unnin í samstarfi við Hagkaup.

Innihald fyrir 4 - 6
100 g perluspelt frá Salling (ósoðin þyngd)
100 g grænar linsur frá Salling (ósoðin þyngd)
2 paprikur, 200 g
gúrka, 200 g
1 rauðlaukur, 80 g
1 dós svartar baunir frá Salling, 240 g
1-2 epli, 200 g
1 granatepli, 100 g
1 dl næringarger, 20 g
salt og pipar
Salatdressingar frá Salling að eigin vali, mjög mikið úrval.
Perluspeltið og grænu linsurnar soðið við vægan hita, (passa að láta ekki bullsjóða í pottinum). Perluspeltið þarf að sjóða í 30 mínútur en grænu linsurnar í 20 mínútur. Á meðan er allt innihaldið í salatið skorið niður og því blandað saman í skál.
Perluspeltið og linsurnar eru kældar örlítið eftir suðu og þeim svo blandað saman við salatið.
Ég var svo með salatdressingar frá Salling. Mér fannst honey mustard dressingin passa mjög vel við salatið, en einnig thousand island dressingin, Cesar dressingin einnig góð, hlakka til að smakka hana á Cesar salat.
Ég elska að nota perluspelt til dæmis í staðinn fyrir hrísgrjón með mat.
Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til.

Næring í 100 g
Kolvetni: 14 g
Prótein: 4,6 g
Fita: 0,6 g
Trefjar: 3 g
Endilega láttu mig vita ef þú prófar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga




Comments