top of page

Amerískar prótein pönnukökur

Jahérna hér! Ég þarf eiginlega ekki að skrifa neitt meira um þessar pönnukökur nema það að hér er komin frábær uppskrift að amerískum próteinríkum pönnkökum án próteindufts. Hver elskar ekki að byrja daginn á mjúkum og gómsætum pönnukökum, að minnsta kosti ég.

Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við MS - Gott í matinn.

Innihald: -120 g kotasæla (1 dl) - 40 g haframjöl (1 dl) - 100 g eggjahvítur (1 dl) - 1/2 tsk lyftiduft

- 1 tsk vanilludropar Blandið öllu saman í blandara eða matvinnsluvél og steikið á heitri pönnu. Það er líka hægt að búa til vöfflur úr þessu deigi en það tekur aðeins lengri tíma fyrir þær að bakast í vöfflujárninu heldur en að steikjast á pönnunni.

Einföld uppskrift verður að um 6 pönnukökum, en fer þó eftir stærð. Mér finnst þetta hæfilegur skammtur fyrir einn í morgunmat eða hádegismat. Einnig er hægt að nota pönnukökurnar sem brauð ef það verður

einhver afgangur.

Næring í 100 g Kolvetni: 14,9 g Prótein: 14,5 g Fita: 4,5 g Trefjar: 1,8 g


Einföld uppskrift er 205 g


Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó skyrskálina til.


Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða amerískar prótein pönnukökur.

Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

Comments


bottom of page