top of page

Asískur hakkréttur

Ótrúlega fljótlegur og einfaldur réttur sem hentar vel í miðri viku þegar tíminn fyrir eldamennsku er naumur. Þetta er stór uppskrift, tilvalið að nota afgangana daginn eftir ef það er afgangur. Það er einnig hægt að sleppa núðlunum og hafa hrísgrjón með réttinum eða bankabygg.


Þessi uppskrift er gerð í samstarfi við Coka Cola, en Coke án sykurs passar einstaklega vel með.


Innihald:

1 msk olía

2-3 hvítlauksrif

1 laukur 150 g

1 kg nautahakk

2 msk sriracha hot sósa

4 msk soya sósa

20 g ferskt engifer - rifið smátt niður

4 msk hunang / 80 g

4 msk hrísgrjóna edik

200 g ósoðnar eggjanúðlur

Sesamfræ yfir réttinn - má sleppa

Þú byrjar á að steikja smátt skorinn lauk og hvítlauk upp úr olíunni og bætir svo hakkinu út á pönnuna. Þegar hakkið er steikt í gegn er restinni af innihaldsefnunum bætt út á pönnuna, öllu blandað saman og látið malla í um 10 mínútur. Á meðan eru eggjanúðlurnar soðnar. Þeim er svo blandað saman við réttinn og hann borinn fram strax.

Gott að setja sesamfræ og niðurskorinn vorlauk ofaná. Og gott að hafa auka sriracha sósu fyrir þá sem það vilja. Ég sýni réttinn með eggjanúðlum en það er einnig mjög gott að hafa hrísgrjón með. Gufusoðið brokkolí eða annað grænmeti og auðvitað ískalda kók án sykurs.

Næring í 100 g

Kolvetni: 14,3 g

Prótein: 12,8 g

Fita: 6,9 g

Trefjar: 0,2 g


Þú finnur þessa skráningu í Myfitnesspal appinu með því að leita að: Helga Magga eða Asískur hakkréttur. Smelltu hér til þess að sjá TikTok myndband af því hvernig ég bjó réttinn til. Endilega láttu mig vita ef þú prufar þessa uppskrift með því að tagga mig á instagram @helgamagga

bottom of page